|
Sannleikurinn er bestur sagna og virðing fyrir öllu |
|
22.04.2012 10:11EinholtDagur framkvæmda var í gær í Einholti. Hófst hann þegar "litli" strákurinn minn, hann Nonni kom hér eldsnemma dags.Það er nú þannig að þegar "Nonninn" kemur á svæðið og einhver fyrirhuguð verkefni eiga að leysast þá er það með hann líkt og í sjónvarps auglýsingunni, "þá fer Árninn í gang, já þá fer Árninn í gang" , þegar átt er við að þurfi að leysa ákveðna hluti sem stundum eru ekki á allra færi. Það er ekki laust við að það nagi mann eitthvað samviskubit eftir að maður nefnir við Nonna að ágætt væri að hann hjálpaði við hin ýmsu störf því á þeim tímapunkti sem hann segist mæta, sem og hann gerir stundvíslega, þá er ekki aftur snúið og törninni líkur ekki fyrr en verkinu er lokið, án svefns og matar. Í 12 klukkustundir vinnur hann á gröfunni án þess að unna sér heiðvirts matartíma og kaffitímar eru ekki í hans orðabók. Alveg er unun að fylgjast með honum vinna á gröfu, vandvirkni og útsjónarsemi er slík. Margar gamlar syndir voru leystar á þessum degi, verkefni sem höfðu beðið í langan tíma og var alveg ótrúlegt hversu miklu var áorkað. Þakka ég drengnum mínum fyrir frábæran dag. Skrifað af T.Agnars
Flettingar í dag: 4 Gestir í dag: 2 Flettingar í gær: 35 Gestir í gær: 10 Samtals flettingar: 62644 Samtals gestir: 15229 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 03:05:25 |
Eldra efni
Tenglar |